Group A Czech Republic Portugal Switzerland Turkey
Tékkar 7 stig
Tékkar unnu sinn riðil í undankeppninni og mæta til leiks með gríðarlega sterkt lið og gera klárlega tilkall til verðlaunasætis í ár.
Þeir unnu 9 leiki, gerðu 2 jafntefli og töpuðu bara 1 leik.
Þeir skoruðu 27 mörk í þessum 12 leikjum en fengu bara 5 mörk á sig.
Þetta er skemmtileg blanda af ungum og eldri leikmönnum.
Þeir eru með frábæran markvörð, sterka vörn, miðjan verður spurningarmerki, og koma þeir til með að sakna Tomáš Rosický sem verður ekki með, sóknin hefur verið að skila fullt af mörkum með reynsluboltana Koller og Baros til að styðja við ungu leikmennina.
Tékkar fara uppúr þessum riðli með 7 stig, gera jafntefli við Portúgal.
Portúgal 5 stig
Portúgalar mæta með mjög gott lið til leiks, með frábæran þjálfara og einn besta knattspyrnumann heimsins í dag en verður það nóg?
Þeir lentu í 2. sæti í sínum riðli með 7 sigra, 6 jafntefli og bara 1 tap.
Þeir skorðuðu 24 mörk og fengu á sig 10.
Þeir eru með fínan markvörð, fína vörn, ég set spurningar merki við miðjuna hjá þeim. Þeir koma til með að spila með 3 inná miðjunni og hafa kantmennina hátt uppi og sækja á þeim, Deco og Petit verða aðalmennirnir á miðjunni og verða þeir að eiga gott mót til að þeim gangi vel. Sóknin verður hættuleg með Ronaldo og Simao á köntunum, það er þó áhyggjuefni fyrir þá að Ronaldo varð 4 markahæstur með 8 mörk í undanriðlinum en sóknarmennirnir voru ekki að skora mikið.
Þeir fara upp með 5 stig, gera jafntefli við tyrki og tékka en vinna swiss.
Tyrkland 4 stig
Tyrkir mæta til leiks með ágætt lið en samt ekki nógu sterkt til að komast uppúr riðlinum.
Þeir lentu í 2. sæti í sínum riðli með 7 sigra, 3 jafntefli og 2 töp.
Þeir skoruðu 25 mörk og fengu á sig 11.
Þeir eru með ágætan markvörð, ekki nógu sterka vörn, miðjan er fín, en þar mun mikið mæða á Emre og Tuncay Sanli og verða þeir að eiga toppmót til að eitthvað gerist hjá Tyrkjum, í sókninni mun einnig mikið mæða á Nihat Kahveci.
Tyrkir eru bara ekki nógu sterkir í ár, þeir munu þó ná jafntefli við portúgal og vinna swiss en tapa fyrir tékkum.
Swiss 0 stig
Swissararnir munu eiga erfitt mót. Þeir eru gestgjafar ásamt Austurríkismönnum en það er bara ekki nóg.
Þeir eru með frekar ungt lið og reynslulítið.
Þeir eru með ágætan markvörð, örugglega fína vörn þar sem mikið mun mæða á Sendros og Degen, Miðjan er spurning og verður Hakan Yakin þar aðalmaður, sóknin mun verða frekar bitlaus hjá þeim.
Þeir munu tapa öllum leikjunum og enda neðstir með 0 stig.
Þá er þessari yfirferð minni lokið um A-riðil, þetta er náttúrulega bara mín skoðun þannig að mönnum er frjálst að tjá sig um þetta og endilega gerið það.